Uppruni Skóla ehf
Þeir feðgar, Pétur R. Guðmundsson og Guðmundur Pétursson stofnuðu 1. ágúst árið 2000 fyrirtækið Skólar ehf 1., þá undir nafninu R.V. Ráðgjöf - verktaka ehf.
Þeir voru þá báðir að vinna hjá sama fyrirtækinu og ákváðu að breyta til og stofna saman fyrirtæki.
Þegar fyrirtækið var stofnað, þá voru þar tvær deildir, skóla- og ráðgjafadeild (Aðstöðustjórnun).
Tildrög þess að stofnuð var skóladeild hjá fyrirtækinu var sú að Pétur heimsótti MOA, Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu Suðurnesja, sem þá var starfandi fyrir Suðurnesin í Reykjanesbæ, með þá hugmynd að byggja og reka lítinn leikskóla í Grindavík.
Á þessum tíma vantaði sárlega leikskólapláss í Grindavík og í framhaldi sendi Pétur með aðstoð MOA inn bréf til Grindavíkurbæjar þar sem þessi hugmynd var viðruð.
Bæjaryfirvöld í Grindavík tóku vel í hugmyndina og gerðu í raun enn betur. Hún var útfærð í það sem mörg sveitafélög eru að gera í dag og er þetta orðinn góður valkostur fyrir sveitafélög þegar kemur að rekstri leikskóla.
Þess má geta að Grindavíkurbær var eitt af fyrstu sveitarfélögunum á landinu til að fara í svona framsækið verkefni og hafa önnur fylgt á eftir í kjölfarið.
Grindavíkurbær bauð út rekstur á 4 deilda leikskóla í framhaldi og urðu R.V. Ráðgjöf – verktaka hlutskarpastir og hóf fyrirtækið rekstur á leikskólanum Krók 5. Febrúar 2001.
Ákveðið var strax í upphafi að leggja áherslu á frjálsan leik og heilseflingu og lögðum við til grundvallar stefnunni okkar málsháttinn „heilbrigð sál í hraustum líkama“ Í leit okkar til að vinna eftir hugmyndum okkar, þá kynntumst við starfsaðferðum á Heilsuleikskólanum Urðarhóli og ákváðum að kynna okkur starfsaðferðir Heilsustefnunar.
Haustið 2002 keyptum við afnotarétt að Heilsubók barnsins sem að leikskólakennarar á Urðarhóli sömdu og var unnið markvisst að því að undirbúa og aðlaga okkur að heilsustefnunni. Þann 5. Nóvember 2003 var leikskólinn formlega opnaður sem Heilsuleikskóli að viðstöddum heilbrigðisráðherra, menntamálaráðherra og fleiri góðum gestum við hátíðlega athöfn.
Síðan þá höfum við rekið leikskólann Krók við góðan orðstír.
Í Janúar 2006 var fyrirtækið ÍAV Þjónusta stofnað og hefur ráðgjafadeildin (Aðstöðustjórnun) fært sig þangað og er Guðmundur Pétursson framkvæmdastjóri þess fyrirtækis.
Með þessari breytingu var ætlunin að skerpa betur á starfsemi þessar tveggja deilda sem voru áður hjá R.V. og var þetta liður í stefnumótun sem var gerð hjá fyrirtækinu árið 2005.
Í þessari stefnumótun var ákveðið að sækja fram með þá fag- og rekstrarþekkingu á sviði leikskóla sem R.V. Ráðgjöf - verktaka hafði yfir að ráða.
Við tókum þátt í útboði á leikskólanum Kór í Kópavogi sem var boðin út 2006. Þetta var nýr 6 deilda leikskóli og í því útboði vorum við hlutskarpastir og byrjuðum við rekstur á þeim leikskóla 1. júní 2006.
Í framhaldi af þessu útboði var ákveðið að breyta nafninu á fyrirtækinu í Skólar ehf til að það samræmist betur starfsemi fyrirtækisins.
Einnig var Unnur Stefánsdóttir ráðin sem framkvæmdastjóri skólasviðs og er henni ætlað að leiða þessa framrás hjá fyrirtækinu.
Unnur er hugmyndasmiður og stofnandi Heilsustefnunar á Íslandi og var skólastjóri Skólatraðar þar sem heilsustefnan er mótuð og síðar varð hún leikskólastjóri á leikskólanum Urðarhól sem er með starfsemi sína í 3 húsum, þau hús heita Skólatröð, Stubbasel og síðan Urðarhóll.
Unnur hefur mikla reynslu af bæði fag- og rekstrarþáttum leikskóla.
Hún útskrifaðist frá Fóstruskóla Íslands árið 1974, hefur lokið uppeldisfræði og stjórnun í framhaldsdeild Fósturskóla Íslands og lauk rekstrar- og viðskiptanámi í endurmenntun Háskóla Íslands.
Unnur hefur síðan þá unnið margvísleg störf s.s. fóstra og forstöðumaður í leikskóla Reykjavíkur, dagvistarfulltrúi Ríkisspítal, verkefnistjóri í Heilbrigðisráðuneytinu, kenndi hagnýta uppeldisfræði við Fósturskóla Íslands og síðan skólastjóri á leikskóla frá 1995 til 2007.
Frá því að fyrirtækið var stofnað höfum við verið að byggja undir stoðir fyrirtækisins til að geta farið í framrás í skólarekstri. Í dag eru stoðirnar traustar og er unnið í litlum og öruggum skrefum í átt að þessari framrás.
Unnur er mikill fengur fyrir fyrirtækið og mun ásamt öðru fagfólki sem þegar er til staðar hjá fyrirtækinu vinna vel að þeirri stefnu sem Skólar hafa, sem er að auka veg heilsustefnunar og fjölga Heilsuleikskólum á Íslandi.