Heilsuleikskólar í rekstri hjá Skólum ehf
- Heilsuleikskólinn Krókur í Grindavík sem tók til starfa 5. febrúar 2001. Leikskólinn er fyrir börn frá 18 mánaða aldri til 6 ára.
Það eru fjórar leikstofur á leikskólanum og geta dvalið 105 börn samtímis. Krókur er 684,7 m2 að stærð, byggingin er einnig í einkaframkvæmd og á Nýsir bygginguna.
Skólinn var vígður sem Heilsuleikskóli 5. nóvember 2003 og eru starfsmenn leikskólans búin að klára skólanámskrá og marka sér þá stefnu sem leikskólinn fylgir.
- Heilsuleikskólinn Kór í Kópavogi sem tók til starfa 1. Júní 2006. Leikskólinn er fyrir börn frá 18 mánaða aldri til 6 ára.
Það eru sex leikstofur á leikskólanum og geta dvalið 124 börn samtímis. Kór er 842 m2 að stærð,byggingin er eign Kópavogsbæjar.
Skólinn var vígður Heilsuleikskóli 1. desember 2008 og eru starfsmenn leikskólans búin að klára skólanámskrá og marka sér þá stefnu sem leikskólinn fylgir.
- Heilsuleikskólinn Hamravellir í Hafnarfirði tók til starfa 1. júní 2008. Leikskólinn er fyrir börn frá 18 mánaða aldri til 6 ára.
Það eru fimm leikstofur á leikskólanum og geta dvalið 120 börn samtímis. Hamravellir er 725,5 m2 og laus útistofa er 120 m2 að stærð, byggingin er eign Hafnarfjarðarbæjar.
Skólinn var vígður Heilsuleikskóli 1. desember 2008 og eru starfsmenn leikskólans búin að klára skólanámskrá og marka sér þá stefnu sem leikskólinn fylgir.
- Heilsuleikskólinn Háaleiti í Reykjanesbæ sem tók til starfa 1. september 2008. Leikskólinn er fyrir börn frá 22 mánaða aldri til 6 ára.
Það eru þrjár leikstofur á leikskólanum og geta dvalið 80 börn samtímis. Háaleiti er 1090 m2 að stærð og er byggingin eign KADECO.
Skólinn var vígður Heilsuleikskóli 11. júní 2010 og eru starfsmenn leikskólans búin að klára skólanámskrá og marka sér þá stefnu sem leikskólinn fylgir.
- Ársól - Ungbarnaskóli í Reykjavík tók til starfa 1. desember 2008. Leikskólinn er fyrir börn frá 09 mánaða aldri til 3 ára.
Það eru tvær leikstofur á leikskólanum og geta dvalið 48 börn samtímis. Ársól er 419 m2, byggingin er eign Reykjavíkurborgar. Gert er ráð fyrir að hægt sé að bæta við tveimur deildum í framtíðinni.
Skólinn er að þróa viðmið Heilsustefnunar fyrir börn á þessum aldri og verið er að vinna í skólanámskránni samhliða því.