Velkomin á vef Skóla ehf.
Forsíða Senda fyrirspurn Stækka letur Eðlilegt letur Leita

Stefna fyrirtækisins er:

a.   Almennt:

Vera framsækið fyrirtæki sem markar sér sérstöðu í krafti mannauðs í þeim verkefnum sem það tekur að sér.
Að veita trausta og góða þjónustu til viðskiptavina sinna.
Tileinka sér ávallt allra nýjustu tækni eins og tök eru á sem þarf til að uppfylla þarfir viðskiptavina, starfsfólks og umhverfis.
Tryggja starfsmönnum félagsins öruggt en krefjandi starfsumhverfi.

b.   Umhverfismál:

Skólar ehf vill vernda og hlúa að hinni hreinu og óspilltu náttúru landsins. Til að ná fram þessu markmiði sínu stefnir fyrirtækið að því að beita jafnt umhverfisvænum sem og hagkvæmum aðferðum í verkefnum sínum. Með því að beita nýjustu tækni á þessu sviðum mun fyrirtækið samræma þau markmið sín að mæta þörfum viðskiptavina, og tryggja jafnframt arðsemi og vernda íslenska náttúru.

c.   Öryggismál:

Öryggi og heilbrigði starfsmanna Skóla á vinnustað er fyrirtækinu mjög mikilvægt. Að fyrirbyggja slys á vinnustað hefur forgang fram yfir önnur verkefni ef aðgerða er þörf í þeim efnum. Skólar mun eins og unnt er veita starfsfólki sínu allann nauðsynlegann búnað og aðstöðu til að tryggja sem best öryggi þeirra og heilsu á vinnustað. Halda þarf uppi virku öryggiseftirliti á vinnustöðvum. Mikilvæg forsenda fyrir því að slíkt starf beri árangur er að allir starfsmenn og stjórnendur séu vakandi fyrir öryggismálum og þeim fyrirbyggjandi aðgerðum sem þörf er á hverju sinni. Nauðsynlegt er að allir innan fyrirtækisins vinni með samstilltu átaki að öryggismálum, hvort heldur er um að ræða stjórnendur eða starfsmenn á hverjum vinnustað fyrirtækisins. Aðeins með slíkri samvinnu er hægt að koma í veg fyrir slys og heilsutjón þeirra sem hjá Skólum starfa.

d.   Framtíðarhorfur:

Í framtíðinni er ætlunin að auka á verkefni í kjarnastarfsemi fyrirtækisins sem er leikskólarekstur og verkefnisstjórnun. Einnig er ætlunin að skoða þá möguleika sem verða í framtíðinni vegna grunnskólareksturs.

Fyrirtækið er í samvinnu við fjölda fyrirtækja og samtaka á þessum sviðum og má þar nefna m.a. Samtök Heilsuleikskóla og  Samtök Sjálfstæðra Skóla.

Undanfarin ár höfum við verið að byggja undir stoðir fyrirtækisins til að geta farið í framrás á þessum sviðum. Í dag eru stoðirnar traustar og er unnið í litlum og öruggum skrefum í átt að þessari framrás.