Velkomin á vef Skóla ehf.
Forsíða Senda fyrirspurn Stækka letur Eðlilegt letur Leita
 

Kæru foreldrar og samstarfsfólk

Mig langar að senda ykkur kærar kveðjur og þakka ykkur fyrir samstarfið í gegnum árin. Ég hef ákveðið að breyta til um starfsvettvang og taka þátt í þeim breytingum sem eru á þjóðfélagi okkar á öðrum vettvangi. Sú reynsla sem ég hef fengið í gegnum þetta skemmtilega starf á örugglega eftir að nýtast mér vel. 

Ég kveð þennan skemmtilega félagsskap sem ég hef fengið að njóta í gegnum þetta starf með bros á vör og tilhlökkun um hvað morgundagurinn hefur að bjóða.

Guðmundur Pétursson, faðir minn mun taka við framkvæmdastjórn hjá Skólum þegar ég hætti nú um næstu mánaðarmót. Við stofnuðum þetta fyrirtæki saman árið 2000 og hann er vel kunnugur um bæði  starfshætti og rekstur fyrirtækisins.

Gangi ykkur allt í haginn og eigið góðan dag.

Með vinsemd og virðingu

Pétur Rúðrik Guðmundsson
Framkvæmdastjóri