Velkomin á vef Skóla ehf.
Forsíða Senda fyrirspurn Stækka letur Eðlilegt letur Leita

Uppruni Heilsustefnunar


Árið 1995 var leikskólinn Skólatröð við Skólatröð í Kópavogi opnaður.  Unnur Stefánsdóttir leikskólastjóri hefur frá barnsaldri lagt stund á íþróttir og lítur svo á að íþróttaiðkun ásamt hollu mataræði skipti miklu máli fyrir vellíðan og árangur bæði barna og fullorðinna í námi og starfi.

Strax á fyrstu vikum skólastarfsins ákváðu skólastjóri og kennarar að markmið skólans yrði: Að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik.  Var ákveðið að byggja framtíðarstarf skólans á þessum markmiðum og gera hugmynd Unnar og kennara hennar um heilsuleikskóla að veruleika.  Á sama tíma veitti Heilbrigðisráðuneytið/ Landlæknisembættið skólanum  fjárstyrk til að þróa framkomnar hugmyndir.  Styrkurinn var veittur í nafni Heilsueflingar sem hefur það hlutverk að veita faglega ráðgjöf við útbreiðslu hollra lífshátta.  Hófst þá vinna við gerð Heilsubókar barnsins og hefur hún verið notuð síðan.  Heilsubókin  er notuð til þess að fylgjast með því hvernig börnunum gengur að ná markmiðum skólans.  Eftirtalda þætti er verið að skrá niður: hæð, þyngd, hvernig börnunum gengur í lífsleikni, að borða matinn, í hreyfifærni og listsköpun.  Mælingar fara fram tvisvar á ári vor og haust og eru foreldraviðtöl í framhaldi af skráningu.

Heilsuleikskólinn Skólatröð er fyrsti heilsuleikskólinn á Íslandi og það var þáverandi heilbrigðisráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir, sem vígði skólann  þann 1. september 1996.

Haustið 1997 tók Kópavogsbær við rekstri leikskólans Stubbasels og var hann rekinn sem deild í Heilsuleikskólanum Skólatröð.  Þann 17. nóvember 2000 vígði Kópavogsbær Heilsuleikskólann Urðarhól í nýju og glæsilegu húsnæði að Kópavogsbraut 19.  Eru áðurnefndir leikskólar nú reknir sem ein heild í nafni Heilsuleikskólans Urðarhóls.
Skólinn er einsetinn og er fyrir 143 börn tveggja til sex ára og er opinn frá kl.07:45 til 17:00.

Í Urðarhól hefur heilsustefnan þróast í áranna rás og hafa mörg verkefni verið unnin og ýmiskonar nýbreytnistarf tekið upp í framhaldi af þeim Eitt af þeim er að leggja niður hinn hefðbundna morgunverð og setja inn máltíð milli kl. 09:00 og 10:00 þar sem í boði er grænmeti og ávextir.  Útgáfa á bæklingi um sex vikna  matseðil fyrir nónhressingu, sem var dreift í alla leikskóla landsins árið 1997.Samstarf við heilsugæslu Kópavogs var tekið upp og er heilbrigðisskoðun fyrir þriggja og hálfs árs börn  framkvæmd af hjúkrunarfræðingi í leikskólanum þar sem foreldrar eru viðstaddir.  Íþróttakennari Urðarhóls og nemendur úr KHÍ íþróttabraut hafa gert fjöldann allan af verkefnum, þar sem gerður er samanburður á börnum sem hafa verið í heilsuleikskóla og þeim sem hafa gengið í aðara skóla.

Heilsustefnan átti 10 ára afmæli 1. september 2006 og að því tilefni gaf Heilsuleikskólinn Urðarhóll út bók um heilsustefnuna og DVD myndband um starf skólans í máli og myndum.